Heima hjá mér og Bjarti var haldið spilakvöld á föstudag.. Og svo fór ég heim til Ali´s að spila póker á laugardagskvöldið. Endaði í fjórða sæti af 12. Geri betur næst.. Verð að æfa mig grimmt.
Æfa pókerfésið

Annars var það bara lærdómur og vitleysa inn á milli.
Það er kannski skemmtilegt að segja frá því að ég er búin að fá mér nýtt rúm.
Gamla rúmið mitt var horbjóður, varla mönnum bjóðandi, í rauninni bara grindin, 200x200, brotin botn og grútskítugt með gömlum klísturblettum.
Ég vildi losna við það. Landlordinn minn sagði að það væri hægara sagt en gert þar sem í Ungverjalandi er bara hægt að losna við gamalt dót einu sinni á ári, í maí. Þá setja allir dótið út á götu.
Þar sem ég vildi ólm losna við þetta hryllingsrúm sagðist ég bara redda þessu.
Ég hringdi á sölu með notuð húsgögn, Þeir mættu.. Ég var búin að taka gaflana af og setja fram. Karlinn sagði nagyon jól! þegar hann sá þá og græðgisglampi kom í augun. Hann hvarf strax þegar hann sá botninn.. Nem kössönöm.. Nem nem.. og svo rauk hann út og skildi mig eftir með sárt ennið og enn ruglaðri hvað ég ætti að gera.
Þessi botn var bara 200x200 og blýþungur. Ekki séns að koma þessu ferlíki út.
Það var seinni tíma vandamál. Fyrst þurfti að festa kaup á rúmi. Ég keypti fínt rúm í rúmfatalagernum en þurfti að bíða í 2 vikur eftir því.
Loksins var hringt í mig og ég fór þá og keypti sög. Keypti eina ódýra og litla og sagaði rúmið í 4 hluta. Blóð sviti og tár.
Við hliðina á okkur er nýlegt hús, enn verið að ganga frá lóð og spýturusl á víð og dreif.
Ég fór 8 ferðir niður með rúmhluta, rúmgafla og risa skúffur sem voru undir rúminu og henti bara í næsta garð. ALGJÖR?
En gaflarnir og skúffurnar lágu þar ekki lengi, hurfu bara strax. Einhver ungverji sáttur núna.
Ég keypti myndir og alls kyns fínerí og nú er herbergið mitt rosa fínt
Alltaf þegar ég kem inn í herbergið mitt líður mér einstaklega vel. Kannski því ég þurfti að hafa svo rosalega fyrir því að gera það svona fínt? Kannski því rúmið mitt er svo þægilegt að ég tími ekki að vakna á morgnana. Kannski því það hefur aldrei verið mín sterka hlið?
Hvað var ég þá að spá að fá mér svona þægilegt rúm???!!!